Til leigu hús á Kanarí á frábæru verði!
Vel staðsett endaraðhús með 3 svefnherbergjum til leigu í Arguineguin (Norska bænum) á Gran Canaria.
Arguineguin er lítill spánskur strandbær sem hefur haldið gamla sjarmanum þrátt fyrir innreið ferðamanna. Gamla höfnin, ströndin, verslanirnar og veitingastaðirnir við sjóinn gera bæinn sérstakann á suðurströnd eyjarinnar. Bærinn er rómaður fyrir verðursæld og sól, um 10 mín sunnar en enska ströndin.
Húsið er 2ja hæða endaraðhús neðarlega í bænum (5 mín frá miðbæ og strönd) og því fylgir allur húsbúnaður, húsgögn, sjónvarp, internet, garðhúsgögn, sólbekkir, o.fl.
Stór sólpallur, svalir og aðgangur að sameiginlegri 25m sundlaug (um 20 hús) fylgir einnig.
Minimarkaður og veitingahús eru hinum megin við götuna, og örstutt er í litla verlsunarmiðstöð og aðra þjónustu og samgöngur.
Svefnaðstaða er fyrir 6 fullorðna. Allur sængurfatnaður, handklæði og slíkt er á staðnum.
Verð á dag (1-6 daga) er kr. 11.900
Verð á dag (7-30 daga) er kr. 9.900
Húseigendur búa á Kanarí og geta veitt frekari aðstoð sé þess óskað, t.d. varðandi bílaleigur, skoðunarferðir, markaði, verðlag, o.fl.
Upplýsingar í siggipalli@siggipalli.is